Íslenska

Þó að tækið þitt styðji ekki þessa niðurhalsþjónustu er hægt að nota það til að skoða upplýsingar um niðurhal. Hægt er að senda tengla á niðurhal í tölvupósti til að hala niður í tölvu.

Fastbúnaður fyrir D3S

Veldu stýrikerfið þitt.

  • Windows
  • Mac OS

Þessi forritauppfærsla er fyrir eigendur vöru sem er skráð hér að ofan (á „viðkomandi vöru“), og er aðeins veitt gegn samþykki á samningi sem er skráður hér að neðan. Með því að velja „samþykkja“ og smella á „sækja“ hefur þú samþykkt skilmála samningsins. Gakktu úr skugga um að þú skiljir skilmála samningsins áður en niðurhal hefst.

  • • Þessi hugbúnaður veitir þjónustu fyrir D3S sem samtímis uppfærir „A“ fastbúnað í útgáfu 1.03 og „B“ fastbúnað í útgáfu 1.02. Veljið Firmware version (fastbúnaðarútgáfu) í SETUP MENU (uppsetningarvalmynd) myndavélarinnar og athugið fastbúnaðarútgáfu myndavélarinnar, áður en áfram er haldið. Ekki þarf að sækja eða setja upp þessa uppfærslu ef fastbúnaðurinn sem er skráður hér að ofan er þegar settur upp.
  • • Lesið upplýsingarnar hér að neðan áður en haldið er áfram.
Breytingar frá fastbúnaðarútgáfu „A“ 1.02/„B“ 1.02 til útgáfu „A“ 1.03/„B“ 1.02
  • • Eftirfarandi atriði löguð:
    • - Rafhlöðuvísirinn blikkaði í sjaldgæfum tilvikum ef kveikt var á myndavélinni með Clean at shutdown (hreinsun við lokun) eða Clean at startup & shutdown (hreinsun við byrjun & lokun) valið fyrir SETUP MENU (UPPSETNINGARVALMYND) > Clean image sensor (hreinsa mynaflögu) > Clean at startup/shutdown (hreinsun við byrjun/lokun).
    • - Tvær mismunandi myndir með sama skráarnúmeri voru í mjög sjaldgæfum tilfellum skráðar á bæði minniskort ef tvö kort voru sett í með Overflow (yfirflæði) valið fyrir SHOOTING MENU (TÖKUVALMYND) > Slot 2 (rauf 2).
Breytingar frá fyrri útgáfum
Breytingar frá fastbúnaðarútgáfu „A“ 1.01/„B“ 1.01 til „A“ 1.02/„B“ 1.02
  • • Aukinn stuðningur fyrir AF-S NIKKOR 800 mm f/5.6E FL ED VR linsur.
Breytingar frá fastbúnaðarútgáfu „A“ 1.00/„B“ 1.00 til „A“ 1.01/„B“ 1.01
  • • Eftirfarandi breytingar á upptöku kvikmynda gerðar til að leiðrétta atriði sem í mjög sjaldgæfum tilvikum lét virðast sem upptöku væri hætt:
    • - skjár með „tökuupplýsingum + stuðlariti“ er í boði í myndatöku með skjáskoðun með Tripod (þrífóts-) stillingu, en stuðlarit hreinsast frá skjánum meðan á upptöku stendur.
    • - Þegar myndavélin er tengd við sjónvarp með EG-D2 hljóð/myndsnúru sýnir hnappurinn fyrir myndatöku með skjá útsýnið í gegnum linsuna bæði á sjónvarpinu og á skjá myndavélarinnar, en núna slekkur skjár myndavélarinnar á sér meðan á upptöku kvikmynda stendur. Skjárinn kveikir á sér þegar EG-D2 hljóð/myndsnúra er aftengd myndavélinni.
  • • Sumum einfölduðum kínverskum valmyndum og hjálpartexta breytt.
  • • Efsta stjórnborðið myndi sýndi „CHA“ með sumum CompactFlash minniskortum og ekki var hægt að nota kortið. Búið er að leiðrétta þetta atriði.
Fastbúnaðarútgáfa myndavélarinnar skoðuð
  1. Kveikið á myndavélinni.
  2. Ýtið á VALMYNDAR hnapp myndavélarinnar og veljið Firmware version (fastbúnaðarútgáfu) í SETUP MENU (UPPSETNINGARVALMYNDINNI) til að birta fastbúnaðarútgáfu myndavélarinnar.
  3. Fastbúnaðarútgáfa myndavélarinnar skoðuð.
  4. Slökkvið á myndavélinni.
Vörulýsing
Heiti D3S „A“ fastbúnaðarútgáfa 1.03 og „B“ fastbúnaðarútgáfa 1.02
Studdar myndavélar D3S
Studdar fastbúnaðarútgáfur myndavélarinnar D3S „A“ fastbúnaðarútgáfa 1.00–1.02, „B“ fastbúnaðarútgáfa 1.00–1.02
Nafn skráar F-D3S-V103W.exe
Kerfiskröfur
  • Microsoft Windows 10 Home
  • Microsoft Windows 10 Pro
  • Microsoft Windows 10 Enterprise
  • Microsoft Windows 8.1
  • Microsoft Windows 8.1 Pro
  • Microsoft Windows 8.1 Enterprise
  • Microsoft Windows 7 Home Basic
  • Microsoft Windows 7 Home Premium
  • Microsoft Windows 7 Professional
  • Microsoft Windows 7 Enterprise
  • Microsoft Windows 7 Ultimate
  • Microsoft Windows Vista Home Basic
  • Microsoft Windows Vista Home Premium
  • Microsoft Windows Vista Business
  • Microsoft Windows Vista Enterprise
  • Microsoft Windows Vista Ultimate
Athugið: Kortalesara eða tölvu með innbyggða minniskortarauf þarf.
Höfundarréttur Nikon Corporation
Tegund skráageymslu Sjálfafþjappandi
Endurmyndun Ekki leyfð
Fastbúnaður myndavélarinnar uppfærður
  1. Búið til möppu á harða disk tölvunnar og nefnið hana eftir eigin vilja.
  2. Sækið F-D3S-V103W.exe í möppuna sem búin var til í skrefi 1.
  3. Keyrið F-D3S-V103W.exe til að ná í eftirfarandi skrá í möppu sem heitir „D3SUpdate“:
    • D3S_0103.bin (fastbúnaður myndavélarinnar)
  4. Afritið „D3S_0103.bin“ á minniskort sem hefur verið forsniðið í myndavélinni með því að stinga því í kortarauf eða kortalesara.
  5. Setjið minniskortið í rauf 1 á myndavélinni og kveikið á henni.
  6. Veljið Firmware version (fastbúnaðarútgáfa) í SETUP MENU (UPPSETNINGARVALMYNDINNI) og fylgið skjáleiðbeiningunum til að ljúka fastbúnaðaruppfærslunni.
  7. Þegar uppfærslunni er lokið er slökkt á myndavélinni og minniskortið tekið úr.
  8. Staðfestið að fastbúnaðurinn hafi verið uppfærður í nýrri útgáfuna.

Athugið: Hægt er að sækja pdf skjal með frekari leiðbeiningum eða upplýsingum um búnaðinn sem þarf til að ljúka uppfærslunni hér:
DSLR_Firmup_Win_En.pdf (PDF) (0,21 MB)

Athugið: Viðurkenndur þjónustufulltrúi Nikon getur uppfært fyrir þig.

Vörulýsing
Heiti D3S „A“ fastbúnaðarútgáfa 1.03 og „B“ fastbúnaðarútgáfa 1.02
Studdar myndavélar D3S
Studdar fastbúnaðarútgáfur myndavélarinnar D3S „A“ fastbúnaðarútgáfa 1.00–1.02, „B“ fastbúnaðarútgáfa 1.00–1.02
Nafn skráar F-D3S-V103M.dmg
Kerfiskröfur
  • OS X 10.11.5
  • OS X 10.10.5
  • OS X 10.9.5
  • OS X 10.8.5
  • OS X 10.7.5
  • Mac OS X 10.6.8
Athugið: Kortalesara eða tölvu með innbyggða minniskortarauf þarf.
Höfundarréttur Nikon Corporation
Tegund skráageymslu Sjálfafþjappandi
Endurmyndun Ekki leyfð
Fastbúnaður myndavélarinnar uppfærður
  1. Sækið F-D3S-V103M.dmg.
  2. Tvísmellið á F-D3S-V103M.dmg táknið til að tengja diskamynd sem inniheldur möppu sem heitir „D3SUpdate“, sem aftur inniheldur eftirfarandi skrá:
    • D3S_0103.bin (fastbúnað myndavélarinnar)
  3. Afritið „D3S_0103.bin“ á minniskort sem hefur verið forsniðið í myndavélinni með því að stinga því í kortarauf eða kortalesara.
  4. Setjið minniskortið í rauf 1 á myndavélinni og kveikið á henni.
  5. Veljið Firmware version (fastbúnaðarútgáfa) í SETUP MENU (UPPSETNINGARVALMYNDINNI) og fylgið skjáleiðbeiningunum til að ljúka fastbúnaðaruppfærslunni.
  6. Þegar uppfærslunni er lokið er slökkt á myndavélinni og minniskortið tekið úr.
  7. Staðfestið að fastbúnaðurinn hafi verið uppfærður í nýrri útgáfuna.

Athugið: Hægt er að sækja pdf skjal með frekari leiðbeiningum eða upplýsingum um búnaðinn sem þarf til að ljúka uppfærslunni hér:
DSLR_Firmup_Mac_En.pdf (PDF) (0,17 MB)

Athugið: Viðurkenndur þjónustufulltrúi Nikon getur uppfært fyrir þig.

Samningur um notandaleyfi

Hægt er að skoða PDF-skrár með ókeypis Adobe® Reader® hugbúnaði.
Sæktu Adobe® Reader®